Greenpeace International Greenpeace Island
Um okkur Fréttir (á ensku) Margmiðlun (á ensku) Baráttumál
Vefsíður um allan heim
Styðja Greenpeace
Greinar
Valkostur fyrir Ísland
Hvalaskoðun
Um hvalveiðar í vísindaskyni
Nokkur ártöl úr sögu hvalveiða
Fortíð og nútíð: Ísland, Greenpeace og hvalirnir (á ensku)
Gallup könnun: Álit Íslendinga á Greenpeace (á ensku)
Myndasýning: Rainbow Warrior á Íslandi (á ensku)
Greinar

Banner leading to comments by travel pledgers

Umhverfismál og heimsviðskipti

Alþjóðaviðskiptastofnunin (WTO) vinnur í þágu sérhagsmuna einstakra þjóða og stórfyrirtækja óháð því hvaða áhrif þær viðskiptareglur kunna að hafa á mál sem varða heilbrigði og umhverfismál í heiminum. Þessir sérhagsmunir gera það að verkum að heimsbyggðin sem er háð ákvörðunum stofnunarinnar færist æ lengra frá friðsamlegum samskiptum, öryggi og sjálfbærri þróun. Þar eð stofnunin tefur úrlausnir mála sem varða miklu fyrir fátækar þjóðir verður að teljast vafamál hvort stofnunin eigi rétt á sér.

Alþjóðaviðskiptastofnunin er sveipuð nokkurri dulúð og starfsemi hennar er ógagnsæ og ólýðræðisleg. Aðeins fáir útvaldir sitja fundi stofnunarinnar sem haldnir eru fyrir luktum dyrum þar sem almenningur getur engin áhrif haft á gang mála.

Alþjóðaviðskiptastofnunin setur viðskiptahagsmuni ofar öllum öðrum málefnum óháð sjálfsögðum mannréttindum, heilbrigðis- og umhverfismálum. Þetta stafar af því að stofnunin er knúin áfram af sérhagsmunum stórfyrirtækja sem til dæmis knýja fram leyfi fyrir erfðabreytt matvæli og fleira.

Mörg stórfyrirtæki sem eiga hagsmuna að gæta innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar fylkja sér að baki Bandaríkjastjórnar í þeim tilgangi að knýja fram reglugerðir sem heimila verslun með erfðabreytt matvæli.

Þar með er ýmsum sáttmálum á sviði umhverfismála sem gera þjóðum kleyft að hafna erfðabreyttum lífverum ógnað og jafnframt alþjóðlegum sáttmála um líffræðilega fjölbreytni.

Óheft milliríkjaverslun gerir það að verkum að auðlindir á borð við ferskvatn, skóga, fiskstofna og jarðefni eru víðast hvar nýttar svo ákaflega að eðlileg endurnýjun getur ekki átt sér stað.

Í hnotskurn má segja að Alþjóðaviðskiptastofnunin sé verkfæri ríkra og valdamikilla þjóða á kostnað hinna fátæku og valdaminni.

Frelsun fólks undan okurverslun

Greenpeace-samtökin hafna þeirri hnattvæðingu sem gerir lítið annað en að styrkja stöðu og völd stórfyrirtækja á kostnað náttúrunnar og þjóða sem minna mega sín.

Samtökin krefjast þess að Alþjóðaviðskiptastofnunin tileinki sér stefnu þar sem hagmunir allrar heimsbyggðinnar fara saman og þar sem áhersla er lögð á að varðveita umhverfið.

Greenpeace styðja alþjóðlega umhverfisstaðla sem hafa umhverfisvernd að leiðarljósi. Viðskipti mega ekki njóta forgangs umfram öll önnur mál og ríkisstjórnir verða að tileinka sér sjálfbæra þróun. Forgangsröðunin verður ávallt að vera á umhverfsvernd, félagslegar og efnahagslegar umbætur.

Greenpeace leggja áherslu á að láta raddir mannkyns um allan heim heyrast inn á borð til þeirra sem sitja við stjórvölinn hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni.

Við biðjum neytendur um allan heim að slást í hópinn með okkur í baráttunni gegn erðfabreyttum matvælum.

 
 

Menu Corners Taktu þátt Menu Corners
 manns hafa lýst yfir miklum áhuga á að ferðast til Íslands og vilja fá upplýsingar um ferðaþjónustu á Íslandi ef ríkisstjórnin hættir hvalveiðum. Verðmæti þess fyrir þjóðarbúið gæti numið    milljónum króna.
Sendu tölvupóstkort
Þitt álit á greenpeace.is
Taktu þátt
Menu Corners Skráðu þig hér! Menu Corners
Skráðu þig á póstlistann til að fá sendar ókeypis fréttir mánaðarlega.





Senda
Taktu þátt í umræðum í Aðgerðamiðstöðinni

Meðferð upplýsinga Höfundarréttur Hafðu samband