Greenpeace International Greenpeace Island
Um okkur Fréttir (á ensku) Margmiðlun (á ensku) Baráttumál
Vefsíður um allan heim
Styðja Greenpeace
Greinar
Valkostur fyrir Ísland
Hvalaskoðun
Um hvalveiðar í vísindaskyni
Nokkur ártöl úr sögu hvalveiða
Fortíð og nútíð: Ísland, Greenpeace og hvalirnir (á ensku)
Gallup könnun: Álit Íslendinga á Greenpeace (á ensku)
Myndasýning: Rainbow Warrior á Íslandi (á ensku)
Greinar

Banner leading to comments by travel pledgers

Kjarnorka

Örugg kjarnorka er ekki til. Greenpeace-samtökin berjast gegn notkun kjarnorku ásamt endurvinnslu kjarnaúrgangs (Sellafield) og losun kjarnorkuúrgangs.

Kjarnorkuöldin hófst árið 1945 þegar Bandaríkjamenn prófuðu fyrstu kjarnorkusprengjuna við Alamogordo í New Mexico. Nokkrum árum síðar eða árið 1953 kynnti Eisenhower forseti Bandaríkjanna ,,Atoms for Peace" áætlun sína á þingi Sameinuðu þjóðanna í anda mikillar bjartsýni um framtíð kjarnorku sem orkugjafa.

Nýting kjarnorku hefur fylgt mikil eyðilegging og aldrei hefur ríkt friður og samstaða um nýtingu hennar. Næstum því hálfri öld eftir ræðu Eisenhowers er geislavirkan úrgang víða að finna og áhrifa geislavirkrar mengunar mun gæta í tugi eða hundruð þúsunda ára.

Enn þann dag í dag er engin örugg aðferð til við förgun geislavirkra efna.

Hvort sem er til hernaðar eða í friðsamlegum tilgangi hefur notkun kjarnorku verið vörðuð sorglegri sögu slysa og eyðileggingar sem reynt hefur verið að hylja með alls kyns blekkingum og röngum upplýsingum.

Geislavirkur úrgangur hefur mengað jarðveg, andrúmsloft, ár, vötn og höf sem valdið hefur sjúkdómum á borð við krabbamein í fólki um allan heim.

Ennfremur hefur kjarnorka aldrei verið hagkvæmur kostur við orkuframleiðslu þrátt fyrir gríðarlegar niðurgreiðslur undanfarna áratugi. Enn í dag renna peningar í formi niðurgreiðslna til kjarnorkuframleiðslu á kostnað annarra endurnýjanlegra orkugjafa á borð við vind- og sólarorku.

Greenpeace-samtökin voru stofnuð árið 1971 eftir að hópur fólks kom saman til að mótmæla fyrirætlunum Bandaríkjastjórnar um að hefja tilraunir með kjarnorkuvopn við eyjuna Amchitka undan strönd Alaska. Þau mótmæli skiluðu árangri.

Tilraunir með kjarnavopn héldu þó áfram þrátt fyrir mótmæli almennings en vaxandi andúð fólks á kjarnorkutilraunum breytti sögunni og nú standa helstu kjarnorkuveldi heims ekki fyrir tilraunasprengingum til að þróa kjarnavopn.

Hér er hægt að skoða kort yfir þau lönd sem hafa yfir kjarnorkuvopnum að ráða.

Enn stafar mikil ógn af notkun kjarnorku sem vert er að berjast gegn þar til heimsbyggðin verður laus við þennan vágest til frambúðar.

 
 

Menu Corners Taktu þátt Menu Corners
 manns hafa lýst yfir miklum áhuga á að ferðast til Íslands og vilja fá upplýsingar um ferðaþjónustu á Íslandi ef ríkisstjórnin hættir hvalveiðum. Verðmæti þess fyrir þjóðarbúið gæti numið    milljónum króna.
Sendu tölvupóstkort
Þitt álit á greenpeace.is
Taktu þátt
Menu Corners Skráðu þig hér! Menu Corners
Skráðu þig á póstlistann til að fá sendar ókeypis fréttir mánaðarlega.





Senda
Taktu þátt í umræðum í Aðgerðamiðstöðinni

Meðferð upplýsinga Höfundarréttur Hafðu samband