Greenpeace International Greenpeace Island
Um okkur Fréttir (á ensku) Margmiðlun (á ensku) Baráttumál
Vefsíður um allan heim
Styðja Greenpeace
Greinar
Valkostur fyrir Ísland
Hvalaskoðun
Um hvalveiðar í vísindaskyni
Nokkur ártöl úr sögu hvalveiða
Fortíð og nútíð: Ísland, Greenpeace og hvalirnir (á ensku)
Gallup könnun: Álit Íslendinga á Greenpeace (á ensku)
Myndasýning: Rainbow Warrior á Íslandi (á ensku)
Greinar

Banner leading to comments by travel pledgers

Stöðvum stríðsátök

Greenpeace-samtökin eru á móti stríði. Þess vegna skipulögðu þau aðgerðir í samvinnu við þúsundir einstaklinga og hvöttu til friðsamlegrar lausnar á Íraksdeilunni. Greenpeace hafa fullyrt að stríðið snýst um yfirráð yfir olíulindum fremur en ógnina af gjöreyðingarvopnum. Samtökin bentu á að stríðið í Írak myndi hafa hræðilegar afleiðingar í för með sér fyrir íbúa íraks og þá ekki síður fyrir umhverfið.

Mörgum mánuðum eftir að beinum stríðsátökum í Írak lauk er enn beðið eftir staðfestingu þess að ríkisstjórn landsins hafi búið yfir gjöreyðingarvopnum. Þrátt fyrir að herliði Bandaríkjamanna og Breta hafi snarlega tekist að tryggja olílindir landsins var ekki sömu varúðar gætt með ýmiss geislavirk efni sem hafa ratað inn á heimili og inn í skóla landsins.

Úraníum og ýmsum öðrum geislavirkum efnum hefur verið stolið og margir íbúar landsins bera þess merki að hafa komist í snertingu við slík efni. Þetta gerðist þrátt fyrir að geislavirk efni hafi verið undir eftirliti Sameinuðu þjóðanna þar til ráðist var inn í Írak. Sex vikum eftir að hersetuliðið tók við stjórn landsins veitti Bandaríkjaher Alþjóðlegu kjarnorkustofnuninni (International Atomic Energy Agency, IAEA) aðgang að einum stað, Tuwaitha, til að meta hversu miklu af geislavirkum efnum hefði í raun verið stolið. Fram að þessu hefur hins vegar stofnuninni verið bannað að meta geislavirkni í nálægum íbúðabyggðum þrátt fyrir samþykktir Sameinuðu þjóðanna þar um.

Greenpeace-samtökin hafa sent lítinn hóp sérfræðinga til íraks til að meta útbreiðslu geislavirkrar mengunar. Sérfræðingarnir mæla geislavirkni með sérstökum mælitækjum á staðnum auk þess sem þeir taka jarðvegs- og vatnssýni sem rannsökuð verða nánar á rannsóknarstofum. Þó svo að þessi könnun verði ekki mjög ítarleg má búast við því að hún varpi einhverju ljósi á raunverulega hættu sem stafar af útbreiðslu geislavirkra efna í Írak.

Greenpeace krefjast þess að staðið verði fyrir ítarlegri rannsókn á öllu Tuwaitha svæðinu sem og öðrum stöðum í landinu sem vitað er að komist hafa í tæri við geislavirk efni:

  • Hersetuliðið verður að veita Alþjóða kjarnorkustofnuninni (IAEA) fullt og ótakmarkað leyfi til rannsókna og sýnatöku í Írak.
  • Hersetuliðið verður að leyfa Kjarnorkustofnuninni að fylgjast með heilbrigðis- og umhverfiseftirliti til að meta áhrif geislavirkra efna í samfélaginu en það þætti sjálfsagt undir öllum kringumstæðum í öllum öðrum löndum.
  • Endurheimt geislavirks efnis þarf að eiga sér stað hið fyrsta því hægt er að nota sum þessara efna til að framleiða geislavirkar sprengjur.
 
 

Menu Corners Taktu þátt Menu Corners
 manns hafa lýst yfir miklum áhuga á að ferðast til Íslands og vilja fá upplýsingar um ferðaþjónustu á Íslandi ef ríkisstjórnin hættir hvalveiðum. Verðmæti þess fyrir þjóðarbúið gæti numið    milljónum króna.
Sendu tölvupóstkort
Þitt álit á greenpeace.is
Taktu þátt
Menu Corners Skráðu þig hér! Menu Corners
Skráðu þig á póstlistann til að fá sendar ókeypis fréttir mánaðarlega.





Senda
Taktu þátt í umræðum í Aðgerðamiðstöðinni

Meðferð upplýsinga Höfundarréttur Hafðu samband