Erfðabreytingar
Erfðabreytingar gera vísindamönnum kleyft að breyta samsetningu erfðaefnis lífvera umfram það sem náttúrulegt er.
Erfðabreyttar lífverur geta æxlast við náttúrulegar lífverur og þar með er hætta á að þær nái dreifingu í náttúrunni með ófyrirséðum afleiðingum.
Segja má að erfðabreyttar lífverur í náttúrunni séu erfðamengun og af þeim stafar mikil ógn þar sem ekki er hægt að afturkalla þær þegar þær hafa náð fótfestu í lífríki náttúrunnar.
Vegna sérhagsmuna er ekki skylt að gera greinamun á erfðabreyttum afurðum og náttúrulegum afurðum svo almenningur hefur engar forsendur til að taka upplýsta ákvörðun um að forðast slíkar vörur.
Þrátt fyrir að framfarir í líffræði auki skilning okkar á náttúrunni og möguleika á þróun lyfja og matvæla réttlætir það ekki tilraunastarfsemi með náttúruna sem gæti haft alvarlegar og varanlegar afleiðingar í för með sér.
Líffræðilega fjölbreytni þarf að vernda og virða sem arflegð mannkyns og sem grundvallaratriði hvað varðar lífsafkomu tegunda.
Í dag reyna þjóðir heimsins að koma sér saman um alþjóðlegar reglur sem taka á þessum málum.
Okkar skoðun:
Erfðabreyttum lífverum ætti ekki að sleppa út í náttúruna þar sem ekki er vitað til fulls hvaða áhrif þær munu hafa á umhverfið og heilsu fólks.
Við mælum með því að erfðabreytt ræktun matvæla verði algerlega aðskilin náttúrulegri ræktun og að erfðabreyttar afurðir verði sérmerktar svo hægt sé að greina þær frá þeim náttúrulegu.
Við erum mótfallin einkaleyfum á erfðabreyttar plöntur, dýr, mannfólk og erfðaefni þeirra. Lífið er ekki iðnaðarvarningur, með því að knýja fram breytingar með þessum hætti á fæðukeðju heimsins svo hún falli betur að efnahag okkar gerum við það á okkar eigin kostnað.
|