Skógar
Um allan heim eiga náttúrulegir skógar undir högg að sækja og margar plöntur og dýr sem lifa í þessum skógum eru í útrýmingarhættu. Jafnframt er afkoma og menning þjóða sem treysta á þessa skóga til lífsviðurværis í hættu. Enn er þó hægt að vernda skógana og lífið sem þeir styðja.
 Náttúrulegir skógar heims eru mjög mismunandi og flokkast í skóga tempraða beltisins, hitabeltisskóga, barrskóga, laufskóga, regnskóga og fenjavið. Þessir náttúrulegu skógar mynda vistkerfi sem eru grundvöllur lífs á jörðinni. Skógar hafa mikil áhrif á veðurfar og loftslag með því að binda mikið magn kolefnis um leið og þeir framleiða súrefni. Auk þess hafa skógar mikil áhrif á hringrás vatns á jörðinni og ýmsa aðra þætti í loftslagi jarðarinnar.
Í náttúrulegum skógum búa um ein milljón frumbyggja sem treysta á skógana sér til lífsviðurværis.
Náttúrulegir skógar eru búsvæði fyrir um tvo þriðju hluta af plöntu- og dýralífi jarðar. Í þeim eru hundruð þúsunda mismunandi plantna og dýra ásamt milljónum tegunda skordýra. Framtíð þeirra veltur á að okkur takist að vernda náttúrulega skóga jarðar.
Miðað við óbreytta nýtingu á næstu tveimur áratugum er hætta á að þúsundir tegunda plantna og dýra muni útrýmast. Enn er þó von til þess að bjarga megi skógunum og þjóðum sem þar búa og byggja afkomu sína á fjölbreytni lífríkisins.
Taktu þátt í aðgerðum á netinu með því að senda skilaboð til verndar náttúrulegum skógum.
Frekari upplýsingar um baráttu Greenpeace til bjargar síðustu náttúrulegu skógunum er hægt að fá með því að senda tölvupóst á netfangið: guestforest@ams.greenpeace.org.
|