| 1848 | Hvalveiðar verða að iðnaði með tilkomu sprengiskutulsins |
| 1905 | Verksmiðjuskip breyta vinnslu og auka afköst flotans upp í 40.000 dýr á ári |
| 1930 | 80% af stofnum stórhvela eru taldir í útrýmingarhættu |
| 1946 | Alþjóða hvalveiðiráðið stofnað af 14 hvalveiðiþjóðum til að stjórna veiðum |
| 1972 | Fjöldi steypireyða, stærstu dýra á jörðinni, fer niður fyrir 6.000 dýr |
| 1975 | Greenpeace samtökin hefja mótmæli gegn hvalveiðum á hafi úti og almenningsálit fer að snúast gegn hvalveiðum |
| 1979 | Alþjóða hvalveiðiráðið stofnar hvalaverndunarsvæði í Indlandshafi |
| 1982 | Alþjóða hvalveiðiráðið samþykkir bann við hvalveiðum frá árinu 1986 á norðurhveli jarðar. |
| 1983 | Bann er samþykkt af CITES við verslun með hvalaafurðir |
| 1987 | Japan hefur vísindaveiðar |
| 1990 | Sjö af níu þjóðum sem stunda hvalveiðar ákveða að hætta veiðum |
| 1993 | Noregur hefur hvalveiðar í ábataskyni að nýju. Fjöldi veiddra dýra yfir 500 á ári |
| 1994 | Hvalaverndunarsvæði stofnað í Suðurhöfum |
| 1994 | Könnun sýnir að 5 milljón manna fara í hvalaskoðunarferðir árlega |
| 1998 | Brasilía, Ástralía og Nýja Sjáland leggja til friðun hvala í Suður Kyrrahafi og Suður Atlantshafi |
| 1999 | Japan kemur í veg fyrir friðunartillögur |
| 2000 | Japan og Noregi mistekst naumlega að aflétta banni við verslun með hvalaafurðir |
| 1999/2000 | Skip Greenpeace sigla í veg fyrir hvalveiðiskip á verndarsvæðum í suðurhöfum og við strendur Noregs |
| 2001 | Hvalaskoðun er stunduð í 87 löndum og velta nemur um 1 milljarði dala á ári |
| 2001 | Japan lofar þróunarhjálp í skiptum fyrir stuðning við hvalveiðar |
| 2001 | Greenpeace kvikmyndar hvalveiðar Japana á verdarsvæði í Suðurhöfum |
| 2002 | Japan kemur í veg fyrir stofnun verndarsvæðis og hafnar veiðum frumbyggja í Norður-Ameríku samkvæmt hefðarrétti |
| 2002 | Mexico gerir alla landhelgi sína í Kyrrahafi, Karíbahafi og Atlantshafi að verndarsvæði fyrir 21 tegund hvala |
| 2002 | Ísland fær inngöngu í Alþjóða hvalveiðiráðið þrátt fyrir að fylgja ekki samþykktum þess og fyrirætlanir um að hefja aftur veiðar árið 2006 |