Loftslagsbreytingar
Í rúma öld hefur fólk reitt sig á jarðefnaeldsneyti á borð við olíu, kol og gas sem orkugjafa. Afleiðing brennslu jarðefnaeldsneytis eru hin svo nefndu gróðurhúsaáhrif sem valda hækkandi hitastigi á jörðinni. Gróðurhúsaáhrifin eru án vafa eitt stærsta og erfiðista umhverfisvandamál sem við stöndum frammi fyrir í dag
Athafnir mannfólksins hafa mikil og vaxandi áhrif á loftslagið sem allt líf á jörðinni þrífst á. Afleiðingar eru meðal annars öfgakennt veðurfar á borð við þurrka, flóð, eyðing vatnsbóla, bráðnun stórra jökla, hækkandi yfirborð sjávar, eyðilegging kóralrifja og margt fleira.
Vísindamenn og ríkisstjórnir um allan heim eru á einu máli um að nýjustu vísindalegar niðurstöður um afleiðingar loftslagsbreytinga af manna völdum sýni afleiðingar sem eru einungis brot af því sem koma skal.
Ekki er of seint að hægja á gróðurhúsaáhrifunum og forðast þar með þær hörmungar sem vísindamenn spá fyrir um. Lausnir á sviði endurnýtanlegra orkugjafa á borð við sólar- og vindorku eru þegar fyrir hendi og því ætti að vera hægt að framleiða nóg af hreinni orku sem sem styður efnahagsþróun um leið og hún verndar náttúruna
Aðrar tækninýjungar í iðnaði til dæmis á sviði kælitækni ,,Greenfreeze" (ísskápur sem Greenpeace lét hana og nýtir ekki ósoneyðandi efni) hafa fært okkur umhverfisvæna valkosti sem hafa ekki sömu áhrif á loftslagið og eldri aðferðir.
Stór fjölþjóðleg fyrirtæki, ríkisstjórnir og einstaklingar verða að hefja þróun og nýtingu þessara vistvænu orkugjafa og smám saman útrýma notkun jarðefnaeldsneytis. Fjárfesta þarf í endurnýtanlegri orku og sérstaklega þarf að þróa efnahag þeirra þjóða sem nýta jarðefnaeldsneyti í miklum mæli svo þessi umskipti verði möguleg.
Á sama tíma þarf tafarlaust að grípa til aðgerða til að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda svo koma megi í veg fyrir óafturkræfar loftlagsbreytingar um allan heim.
Í nóvember 2001 var Kyoto-bókunin loks samþykkt og frágengin í Marrakech í Marokkó en það var fyrsta mikilvæga skrefið sem tekið var í þessum málum.
Bandaríkjastjórn neitar þó enn að fullgilda Kyoto-bókunina og grípa til aðgerða til þess að minnka útstreymi þessara gróðurhúsalofttegunda. Bandaríkjamenn eru aðeins 5% af mannfjölda jarðarbúa en þrátt fyrir það er útstreymi gróðurhúsalofttegunda þaðan um 25% á heimsvísu. Einnig halda ríkisstjórnir sumra iðnríkja áfram að styðja notkun jarðefnaeldsneytis í iðnaði með niðurgreiðslum og ívilnunum. Á sama tíma er opinber fjárhagsaðstoð til að auka hlut endurnýjanlegra orkugjafa lítil sem engin og því skortir nægjanlegt fjármagn til frekari þróunar.
Greenpeace-samtökin undirbúa um þessar mundir herferð á heimsvísu til að sýna fram á aðra valkosti sem komið geta í veg fyrir loftlagsbreytingar. Með herferðinni er ætlunin að beina þeim tilmælum til George W. Bush Bandaríkjaforseta og stórfyrirtækja á borð við ExxonMobile um að vinna með samfélagi þjóðanna við þróun og nýtingu vistvænna orkugjafa.
Greenpeace-samtökin vinna í samstarfi við fyrirtækið The Body Shop að því að koma á endurnýtanlegum orkugjöfum í vanþróuðum ríkjum sem ekki hafa fullbúin orkudreifingarkerfi.
|