December 13, 2004
Velkomin á íslenska vefsíðu Greenpeace
![]() | Greenpeace-samtökin berjast gegn umhverfisvá um allan heim. Meðal helstu baráttumála þeirra má nefna bann við framleiðslu og losun eiturefna, að koma í veg fyrir framleiðslu og losun geislavirks úrgangs, að stöðva loftslagsbreytingar og hvalveiðar. Á áttunda áratugnum mótmæltu Greenpeace fyrst hvalveiðum hér við land eða þar til þeim var hætt árið 1989. Í kjölfar ákvörðunar íslensku ríkisstjórnarinnar um að hefja hvalveiðar í vísindaskyni á ný sendu Greenpeace flaggskip sitt, Rainbow Warrior, til landsins í þeim tilgangi að efna til umræðu um hvalveiðar og önnur mikilvæg umhverfismál. |
Von Greenpeace er sú að með því að opna íslenska vefsíðu gefist kostur á opinskárri umræðu um hvalveiðar og önnur umhverfismál. Á ferð okkar um landið síðastliðið haust kynntumst við skoðunum Íslendinga og margir létu í ljós ánægju sína með heimsókn okkar.
Íslendingar hafa ítrekað beitt sér kröftuglega á alþjóðavettvangi í málefnum er varða umhverfisvernd. Þar ber hæst hlutverk Íslands í þróun Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna sem samþykktur var árið 1982 og varð að alþjóðalögum 12 árum síðar. Ennfremur, alþjóðlegt bann við 12 af verstu eiturefnunum á vettvangi Umhverfisáætlunar Sameinuðu þjóðanna (UNEP) sem samþykkt var í Stokkhólmi 2001.
Það er afstaða Greenpeace að Ísland ásamt öðrum Norðurlandaþjóðum gegni mikilvægu hlutverki í alþjóðlegu samstarfi um umhverfisvernd í Evrópu, á norðurslóðum og á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Við beinum þeim tilmælum til íslenskra stjórnvalda að hætta hvalveiðum og þess í stað nýta hvalastofna með hvalaskoðun. Ennfremur er það einlægur vilji Greenpeace að vinna með Íslendingum að öðrum málefnum, þá ekki síst að stöðva loftslagsbreytingar og mengun sjávar, sem skipta höfuðmáli um framtíð lífs á jörðinni eins og við þekkjum það.
Fyrir hönd Greenpeace, Frode Pleym
Posted by brianfit at December 13, 2004 03:49 PM


