Greenpeace International Greenpeace Island
Um okkur Fréttir (á ensku) Margmiðlun (á ensku) Baráttumál
Vefsíður um allan heim
Styðja Greenpeace
Greinar
Valkostur fyrir Ísland
Hvalaskoðun
Um hvalveiðar í vísindaskyni
Nokkur ártöl úr sögu hvalveiða
Fortíð og nútíð: Ísland, Greenpeace og hvalirnir (á ensku)
Gallup könnun: Álit Íslendinga á Greenpeace (á ensku)
Myndasýning: Rainbow Warrior á Íslandi (á ensku)
Greinar

Banner leading to comments by travel pledgers

Um Greenpeace

Greenpeace eru frjáls félagasamtök sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni. Greenpeace samtökin reka skrifstofur í 40 löndum í Evrópu, Ameríku, Asíu og í Eyjaálfu.

Til þess að tryggja sjálfstæði samtakanna taka Greenpeace ekki við fjármagni frá stjórnvöldum eða fyrirtækjum heldur fjármagna þau starfsemi sína með frjálsum framlögum frá einstaklingum og styrkjum frá einstaka óháðum stofnunum.

Í stuttu máli má segja að Greenpeace-samtökin eru starfrækt vegna þess að þess að lífríki jarðarinnar þarf sinn málsvara.

Þar sem Greenpeace eru alþjóðleg samtök einbeita þau sér að mestu hættum sem stafa að lífríki jarðar

     Helstu baráttumál

Árið 1971 hugðist Bandaríkjastjórn hefja tilraunir með kjarnorkuvopn við eyjuna Amchitka undan strönd Alaska. Hópur fólks frá Kanada tók höndum saman til að koma í veg fyrir tilraunirnar en vitað var að þær myndu hafa alvarlegar afleiðingar fyrir lífríki svæðisins. Þessar aðgerðir mörkuðu upphaf Greenpeace-samtakanna.

Greenpeace leggja kapp á að koma í veg fyrir glæpi gegn umhverfinu og setja þrýsting á stjórnvöld og stórfyrirtæki til að þau fari að lögum og tryggi vernd umhverfisins með stefnu sinni.

Greenpeace leggja áherslu á opna og upplýsta umræðu um þá valkosti sem mannkynið stendur frammi fyrir. Í starfi sínu nýta samtökin rannsóknir, stunda öfluga upplýsingastarfsemi og samningaviðræður áður en farið er út í friðsamlegar mótmælaaðgerðir sem njóta mikillar umfjöllunar..

Grundvallaratriði í verndun lífríkisins er að baráttan snýst ekki um samtökin sjálf heldur snýst hún um þig og þá afstöðu sem þú tekur. Greenpeace talar fyrir 2,8 milljónir stuðningsmanna um allan heim og daglega hvetja þau margar milljónir manna þar fyrir utan til að láta til sín taka.

Nafnið Rainbow Warrior, sem prýðir flaggskip samtakanna, á rætur sínar að rekja til þjóðsögu meðal Cree-indíána í Norður Ameríku þar sem segir "Þegar síðasta tréð hefur fallið, síðasta áin er menguð og síðasti fiskurinn er dauður, munum við átta okkur á að við getum ekki borðað peninga." Stríðsmenn regnbogans eru þeir sem vernda jörðina gegn græðgi og niðurníðslu.

 
 

Menu Corners Taktu þátt Menu Corners
 manns hafa lýst yfir miklum áhuga á að ferðast til Íslands og vilja fá upplýsingar um ferðaþjónustu á Íslandi ef ríkisstjórnin hættir hvalveiðum. Verðmæti þess fyrir þjóðarbúið gæti numið    milljónum króna.
Sendu tölvupóstkort
Þitt álit á greenpeace.is
Taktu þátt
Menu Corners Skráðu þig hér! Menu Corners
Skráðu þig á póstlistann til að fá sendar ókeypis fréttir mánaðarlega.





Senda
Taktu þátt í umræðum í Aðgerðamiðstöðinni

Meðferð upplýsinga Höfundarréttur Hafðu samband